Hannesarholt

Hannesarholt Cuisine and culture in a beautiful historic building in the centre of Reykjavík. Matur, menning, fundir og ráðstefnur í sögufrægu húsi. Built in 1915.

Culture, art, food and history in a beautiful historic home of Iceland's First Minister of State, Hannes Hafstein, in the centre of Reykjavík. Hljóðberg, music-and conference hall recently built adjacent to the house. Matur, menning, listir, saga, fundir og ráðstefnur í sögufrægu húsi, síðasta heimili Hannesar Hafstein, fyrsta Íslandsráðhennans. Byggt 1915. Í nýlegri viðbyggingu við húsið er Hljóðberg, tónlistar-og ráðstefnusalur.

23/09/2026
Lífið í Hannesarholti getur verið svo skemmtilegt. Í vinnslu hjá Þórdísi Lilju á sýningunni Tímans virði er matinn er ol...
23/09/2026

Lífið í Hannesarholti getur verið svo skemmtilegt. Í vinnslu hjá Þórdísi Lilju á sýningunni Tímans virði er matinn er olífuolía og tómatar og sama var í matinn í hádeginu. Svo eru þær hér saman að sýsla, Þórdís sem er að ljúka sýningu sinni og Guðný M. Magnúsdóttir sem er að setja upp sína sýningu, ... vasi allan daginn. Guðný bjó hér á Grundarstíg 10 með fjölskyldu sinni um árabil. Sýning Guðnýjar opnar á morgun, fimmtudag kl.15-17.

BÓKVITHannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur...
23/09/2026

BÓKVIT
Hannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Allt er þetta í takt við söguna, enda var Hannes Hafstein bókamaður fram í fingurgóma.

Hannesarholt hefur boðið uppá upplestrarstundir á laugardögum kl.11.30-12.30 sem nefnist BÓKVIT. Rithöfundum býðst að lesa uppúr bókum sínum, nýútkomnum eða ekki, í óformlegri samverustund í Hljóðbergi. Höfundum er einnig frjálst að selja bækur sínar á staðnum. Frítt er inná lestrarstundirnar og enginn fær greitt fyrir sína aðkomu, hvorki Hannesarholt né höfundar. Aðeins tækifæri og aðstaða til samveru.
Áhugasamir geta skráð sig í BÓKVIT í Hannesarholti á eftirfarandi dögum í haust hér fyrir neðan:

3.október
17.október
14.nóvember
21.nóvember
28.nóvember

Skrá sig hér: https://forms.gle/w6v9aHWfQ9B78qr66

19/09/2026

Syngjum saman Leikhúslög barnanna með Björgu Birgis og Jóni Elís laugardaginn 19.september kl.14. Textar á tjaldi og allar kynslóðir velkomnar. Frítt inn.

Björg Birgisdóttir söngkona og Jón Elísson píanisti hafa leitt Syngjun saman nokkrum sinnum í Hannesarholti, í þetta sinn bjóða þau börnum frá 0-100 ára að koma og syngja með sér lög úr barnaleikritum sem við þekkjum öll og elskum.

Björg hefur komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri, bæði hérlendis og víðar í Evrópu.
Jón hefur spilað með fjölda hljómsveita og tónlistarmanna víða um heim.

Björg og Jón starfa nú saman í Sönghúsi Domus Vox hjá Margréti Pálmadóttur og njóta þess að miðla til upprennandi nýs tónlistarfólks.
Enginn aðgangseyrir.
Veitingahúsið í Hannesarholti er opið frá kl.11.30-16.00

Hádegismatur í Hannesarholti, Hollvinahittingur í dag kl.16, frítt inn, allir velkomnir, Tónlleikar í kvöld, uppselt, Sy...
18/09/2026

Hádegismatur í Hannesarholti, Hollvinahittingur í dag kl.16, frítt inn, allir velkomnir, Tónlleikar í kvöld, uppselt, Syngjum saman laugardag kl.14, Leikhúslög barnanna með Björgu og Jóni, frítt inn, Tónleikar laugardagskvöld Marsibil, Miðasala á tix.is Öll velkomin í Hannesarholt.

VILTU HALDA OPINN LESHRING Í HANNESARHOLTI? Leshringir leiddir af sjálfboðaliðum eru nýjung í Hannesarholti. Gert er ráð...
11/09/2026

VILTU HALDA OPINN LESHRING Í HANNESARHOLTI?
Leshringir leiddir af sjálfboðaliðum eru nýjung í Hannesarholti. Gert er ráð fyrir að leshringir séu haldnir á virkum dögum og taki um það bil klukkustund. Allir velkomnir, ekki nauðsynlegt að hafa lesið bókina eða höfundinn sem fjallað er um, nóg að hafa áhuga og vilja kynnast honum. Sá fyrsti kl.14 föstudaginn 11.september. Rán Tryggvadóttir lögfræðingur og Magnús Sigurðsson skáld og fræðimaður leiða fyrsta leshringinn. Næsti leshringur 9.október kl.14 í veitingastofunum á 1.hæð, þar sem Soffía Auður Birgisdóttir segir frá Orlando eftir Virginíu Woolf, sem kom út í íslenskri þýðingu Soffíu 2017. Öll velkomin. Enginn aðgangseyrir.Sýna minna

Allt á fullu í Hannesarholti þessa dagana. Matur í hádeginu, kaffi og með því til kl.16. Tónleikar miðvikudagskvöld 9.se...
09/09/2026

Allt á fullu í Hannesarholti þessa dagana. Matur í hádeginu, kaffi og með því til kl.16. Tónleikar miðvikudagskvöld 9.sept, Nýja Tríó Reykjavíkur: Herdís Mjöll, Geirþrúður Anna og Liam Kaplan, Pop-up myndlistarsýning Steinunnar Sæmundsdóttur á 2.hæðinni út vikuna, Leshringur um Emily Dickinson föstudaginn 11.september kl.14 með Rán Tryggvadóttur og Magnúsi Sigurðssyni, Tónleikar föstudagskvöldið 11.september Tvíeykið Kvistir, Ingi Arnaldarsson og Ingi Össurarson, Tónleikar laugardag kl.17, Jane Ade og Birkir Arnar Hafsteinsson. Þórdis Lilja með myndlistarsýningu í veitingastofum. Verið velkomin.

30/04/2026
Gleðilegt sumar!! Velkomin á morgun. Hádegismatur frá 11.30.
23/04/2026

Gleðilegt sumar!! Velkomin á morgun. Hádegismatur frá 11.30.

Address

Grundarstígur 10
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hannesarholt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share