Sjávarbarinn

Sjávarbarinn Líflegur og heimilislegur sjávarréttastaður við Grandagarðinn. Sjávarréttahlaðborð - Sérréttaseðill - Íslenskur heimilismatur - Frábært verð
(234)

Sjávarbarinn er líflegur og heimilislegur sjávarréttastaður
við Grandagarðinn – gegnt Sjóminjasafninu – sem Magnús
Ingi Magnússon matreiðslumeistari rekur ásamt eiginkonu sinni, Lisu. Ríkulegt sjávarréttahlaðborð er aðalsmerki staðarins en
einnig er boðið upp á fjölbreyttan sérréttaseðil þar sem
ferskur fiskur er í öndvegi. Líf og fjör er í hádeginu þegar svangt fólk sem vinnur í
grenndinni fjölmennir á staðinn. Á hlaðborðinu er úrval
heitra og kaldra fiskrétta, íslenskur heimilismatur, eins og fiskibollur og plokkfiskur, og alltaf er einn kjötréttur í boði
ásamt fersku grænmeti og öðru meðlæti.

Á kvöldin er andrúmsloftið afslappaðra og tilvalið að dekra
við bragðlaukana með lostæti á borð við hvítlauksristaðan
humar, lambafillet með blóðbergi eða matarmikla fiskisúpu
(á undan er hægt að vekja bragðlaukana með
hákarli og brennivínssnafsi). Að afloknum málsverði á sumarkvöldi er svo upplagt að
rölta í miðbæinn meðfram gamla hafnarsvæðinu. Verið velkomin á Sjávarbarinn!

Address

Grandagarði 9
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 11:00 - 22:00
Tuesday 11:00 - 22:00
Wednesday 11:00 - 22:00
Thursday 11:00 - 22:00
Friday 11:00 - 22:00
Saturday 11:00 - 22:00
Sunday 11:00 - 22:00

Telephone

+3545173131

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjávarbarinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share