21/08/2026
Viltu vinna hjá Bæjarins Beztu?
Við erum að leita að hressum og þjónustulunduðum pylsusölum til að bætast í hópinn okkar!
Starfið felst fyrst og fremst í afgreiðslu, þjónustu við viðskiptavini og því að tryggja að allir fari frá okkur saddir og sáttir !
Við leitum að þér sem:
• Ert jákvæð/ur, stundvís og áreiðanleg/ur
• Hefur gaman af því að vinna með fólki
• Getur unnið vel þegar mikið er að gera
• Ert tilbúin/n að vinna bæði sjálfstætt og með góðu teymi
• Getur unnið fjölbreyttar vaktir
Reynsla af afgreiðslu eða þjónustustörfum er kostur en alls ekki skilyrði – við kennum þér það sem þarf.
• Fjölbreytt og líflegt starf
• Góður starfsandi
• Sveigjanlegar vaktir
• Frábært fólk og nóg að gera
Hefur þú áhuga?
Sendu okkur umsókn og nokkrar línur um þig ásamt ferilskrá á [email protected]
👉 Endilega deilið – kannski leynist næsti pylsumeistari á vinalistanum þínum! 🌭