The hot water originates in Europe’s most powerful hot spring Deildartunguhver, at a temperature of 100°C (212°F) Framkvæmdin:
70 metra norðan við Deildartunguhver í Borgarfirði hafa risið á undanförnum misserum Krauma – náttúrulaugar. apríl 2015 og framkvæmdir hófust tveimur dögum seinna, 29. Byggingarnar eru í heild um 640 m2, samanstanda af þjónustuhúsi með búningsaðstöðu fyrir 200 manns, veiti
ngastað og bar.. Einnig eru eitt vatnsgufubað, Infrarauður klefi og hvíldarherbergi á laugasvæðinu
Lögð er áhersla á gott aðgengi frá Deildartunguhver og upphituð gangstétt liggur þaðan að Krauma. Arkitekt bygginga, laugasvæðis og landslags er Brynhildur Sólveigardóttir hjá Akur. Húsasmíðameistari er Sigurður Árni Magnússon. Náttúrulaugarnar:
Meginaðdráttarafl Krauma eru náttúrulaugarnar. Búningsaðstaða fyrir 200 manns er í þjónustuhúsi og austan við það fimm heitir pottar af ýmsum gerðum sem allir innihalda hveravatn úr Deildartunguhver. Engum klór eða sótthreinsiefnum er blandað í vatnið en þess í stað er tryggð næg endurnýjun vatnsins í pottunum. Vatnsgufubað og Infrared klefi er á laugasvæðinu og fyrir þá sem vilja, er hægt að skella sér ofan í ískaldan pott til að koma blóðinu almennilega á hreyfingu. Til að fullkomna slökunina er gestum boðið að njóta hvíldarherbergis á laugasvæðinu við róandi tónlist og snark í arineldi.