12/10/2026
8 ára og þvílíkt ferðalag ❤️✈️
Í dag fögnum við 8 ára afmæli veitingastaðarins okkar við C hliðin á Keflavíkurflugvelli. Þessi átta ár hafa kennt okkur meira en við hefðum nokkurn tíman geta ímyndað okkur. Þetta hafa verið átta ár af gleði, uppbyggingu, áskorunum, áföllum, svefnlausum nóttum og ótrúlega mikilli vinnu.
Þetta hefur svo sannarlega ekki alltaf verið auðvelt en fyrsta árið var gríðarlega erfitt og síðan hefur hvert áfallið á fætur öðru dunið yfir. Við höfum upplifað gjaldþrot flugfélaga, Boeing MAX-vélarnar sem komu ekki strax eins og vonir stóðu til og færri farþega um flugvöllinn. Svo kom COVID, sem reyndi á okkur eins og svo marga aðra.
Þegar eldgos hófst í Grindavík í Nóvember 2023 þurftum við að yfirgefa okkar heimavöll og finna aðra leið til að sinna verkefnum okkar fyrir flugvöllinn. Við höfum þurft að aðlagast, færa okkur um set og finna lausnir þegar aðstæður hafa verið hvað erfiðastar. Í dag erum við með framleiðslueldhús í Sandgerði þar sem allur undirbúningur fyrir flugvöllinn fer fram.
Síðan kom enn eitt stórt áfall þegar PLAY varð gjaldþrota á síðasta ári. Það hafði mikil áhrif á okkur, bæði fjárhagslega og rekstrarlega, enda höfðum við séð um mat fyrir áhafnir félagsins. Þegar flugfélag hverfur tapast ekki aðeins verkefni og tekjur, heldur breytist líka umferðin um flugvöllinn.
Stundum höfum við sannarlega spurt okkur hvernig við ættum að komast í gegnum næsta kafla en hér erum við enn.
Þrátt fyrir öll áföllin, bæði vinnutengd og persónuleg, höfum við ekki gefist upp. Við höfum haldið áfram að vinna, leita lausna, byggja upp og trúa því að það sé alltaf hægt að finna leið áfram, jafnvel þegar hún virðist ekki vera til. Á síðasta ári höfum við meira að segja opnað annan veitingastað í Smáralind. Það er stórt skref og mikil gleði að geta haldið áfram að þróast og byggja upp nýja hluti eftir allt sem á undan er gengið.
Á bak við þennan rekstur eru ekki bara fyrirtæki, verkefni og tölur. Þar erum við tvö, vinnum hlið við hlið og höfum lagt ótrúlega mikið í þennan draum okkar. Það hefur reynt á okkur á allan hátt en við höldum áfram skref fyrir skref. Við vitum að átta ár (16 ár frá því við byrjuðum í Grindavík) í rekstri eru ekki sjálfsögð. Þau hafa kostað okkur mikla vinnu, fórnir, þrautseigju og stundum fleiri tár en fólk sér utan frá.
Í dag viljum við fyrst og fremst þakka öllum þeim sem hafa stutt okkur, starfað með okkur, verslað við okkur og trúað á okkur í gegnum árin. Þið hafið skipt okkur meira máli en orð fá lýst ❤️
Við fögnum því ekki bara átta árum í rekstri, við fögnum því að hafa staðið af okkur stormana, lært af þeim og fundið styrk til að halda áfram. Við erum reynslunni ríkari með báða fæturna á jörðinni og augun á næstu verkefnum. Það kemur svo í ljós hvað framtíðin ber í skauti sér.
Takk fyrir að vera hluti af ferðalaginu okkar.
Ferðalagið heldur áfram ❤️🥂