22/09/2026
Halló halló kæru golfarar, nágrannar og aðrir vinir hOla 💚
Við erum enn með opið og ætlum að njóta síðustu dagana með ykkur áður en við lokum fyrir tímabilið 🥰
Veðrið hefur reyndar ekki verið alveg að vinna með okkur síðustu tvo daga og því lokuðum við aðeins fyrr í gær og í dag — afsakið það ef einhverjir þurftu frá að hverfa 💚
Síðasti dagurinn sem eldhúsið verður opið er laugardaginn 26. september, svo endilega kíkið til okkar í vikunni og fáið ykkur eitthvað dýrindis af matseðlinum áður en við förum í smá haustfrí 🍽️💚
Og þó að golfvertíðin sé að klárast er alls ekki allt búið hjá okkur… 🎄✨
Jólahlaðborð hOla mathúss er framundan og salan er komin á fullt!
Tryggðu þér sæti hér:
https://arvo.is/e/jolahladbord
Komdu og njóttu góðs matar, yndislegs umhverfis og sannrar jólastemningar með okkur 💚🎄
Hlökkum til að sjá ykkur!